Glappakast
Skólasýningin Glappakast fékk mikil lof seinasta sumar og snýr nú aftur til að skemmta enn fleiri börnum. Í sýningunni erum við klaufar sem vinnum saman til að gera eitthvað skemmtilegt til að sýna, við fáum hjálp frá krökkunum og komum okkur stundum í klaufalegar aðstæður sem við vitum ekki alveg hverning við eigum að bregðast við. Í sýningunni má sjá fimleika, jöggl og brjálaða skemmtun. Glappakast hentar vel fyrir breiðan aldurshóp. Verð: 140.000kr og er 25 mínútur |
Mikilvæg Mistök Sýningin er eins manns 20 mínútna sirkussýningu fyrir leikskólaaldurinn í sýningunni er notast við sirkusáhöld sem börnin tengja við eins og bolta, kubba og sápukúlur.
Með mér í sýningunni er ,,amma gamla" leikin af brúðu sem hvetur mig áfram og sýnir mér að það sé allt í lagi ef eitthvað fer úrskeiðis, mistök séu mikilvægur partur af því að læra. Sýningin lítil í sniði svo hún passar vel innandyra á leikskólum en getur líka verið sýnd úti, sýningin var gerð með leikskóla í huga en hefur virkað vel fyrir allt að 5.bekk grunnskóla Gerð sýningarinnar var styrkt af launasjóði listamanna. Verð: 70.000kr og er 20 mínútur |
Springum útÍ sumar erum við að frumsýna nýja sýningu sem er en stærri í sniði.
Sýningin er þriggja manna stuðsýning þar sem við sýnum allskonar sirkusáhöld og hentar vel fyrir stærri viðburði Verð: 210.000kr og er 35 mínútur Einnig erum við með tveggja manna útgáfu sem er á 140.000kr og er 25 mínútur |